Í dag vaknaði ég hundrað sinnum áður en ég actually þurfti að vakna!!!

reyndar var það eins í gærnótt. Það er aðallega venga þess að tígur er kominn með æði fyrir að hrinda niður hlutum af hillum, borðum, bekkjum og nefndu það... Svo var verið að parketleggja og stofan var næstum tilbúin þegar ég loksins dröslaðist á fætur!

Parketið sem mamma kvað vera forljótt leit svona glimrandi vel út í stofunni minni

Svo er planið að reyna að splæsa í parket fyrir restina á íbúðinni, þ.e.a.s. nema á baðherbergið! Þar verður flísalagt þegar ég hef efni á því..... sem sagt eftir milljón ár, nema ég kynnist ríkum manni á árinu!!!
Anyway.. ég er í vinnunni og fór að hugsa um hvað mig langar í ofsalega margt og ákvað að vera svaka leim og skrifa það niður. Mjög raunhæft eða hitt og heldur tíhí

anyway here it comes ,,in no particular order" (úr dancing with the stars

)
1. Milljón
2. Bíll
3. Nýtt sjónvarp (þ.e.a.s. ef að mitt er endanlega ónýtt)
4. Digital myndavél
5. Flotta ljósakrónu stóra sem hangir út til að hafa í stofunni
5. Svart sófasett
6. Nýr sími (ódýran ekkert dýrt dæmi með hundrað tilgangslausum tökkum sem gera það ara erfitt að skrifa sms)
7. Svart glerborð f. stofuna
8. Málaverk í forstofuna
9. Inneign í klippingu og litun þvi ég tími því aldrei, þangað til einhver gefur mér það verð ég svona ljóshærð

10. Flösku af einhverju góðu áfengi, rauðvín, hvítvín eða passóa o.s.frv

11. Reykelsi sem fást í jólahúsinu
12. glerkertastjaka
13. Kommóðu langa og granna sem að passar inní herbergið mitt dökk brúna eða hvíta
14. Málverk til að hafa fyrir ofan kommóðuna inní stofunni með hvítum gráum bleikum eða svörtum litum
15. Striga til að mála sjálf málverk á! Langar mikið í

Ca. 1.20 LENGD X .O.70 BREIDD
16. Machintosh
17. Svört stígvél því það er komið gat á botninn á mínum og ég er alltaf blaut í lappirnar :/
18. Hring á löngutöng (puttann í miðjunni) gull í stíl við hina
19. Eyrnalokka, bara ódýra úr accesories
20. Silfursafnið með páli óskari
21. Þurrkara
22. Góða dvd mynd
23. Frið og og gleði á komandi ári ef einhver er töframaður!

24. Blandara
Faðmla og koss á kinnina alltaf vel þegið líka!

Nú get ég ekki beðið eftir að hitta ykkur stelpur það verður svo æðislegt að fá ykkur allar heim ég gjörsamlega get ekki beðið!

Innilega til hamingju Inga með útskriftina þú stóðst þig ekkert smá vel, hlakka til að sjá myndir af borðinu þínu!
Takk til allra þeirra sem hafa verið partur af lífi mínu á árinu og sett svip sinn á það. Gleðileg Jól og guð hefi öllum gleði og frið á komandi ári

p.s. og meiri peninga og minna krepputal!!!